Er virkilega þörf á því að flytja inn glæpamenn ?

Ég hélt við hefðum nóg með íslenska fanga og afbrotamenn... afhverju í ósköpunum er það kappsmál að koma manninum til Íslands og setja hann svo í íslenskt fangelsi og borga fleiri milljónir undir rassgatið á honum á meðan hann hangir á lúxus sveitahóteli með fríu fæði, menntun og heilbrigðisþjónustu og flytur svo væntanlega af landi brott í kjölfarið og þessi betrunarvistun hans kemur okkar samfélagi ekki nokkurn skapaðann hlut við ?

Ég myndi telja nóg að setja hann á svartann lista og meina honum inngöngu í landið og ef hans eigið land vill dæma hann í fangelsi þá er hann þeirra vandamál en ekki okkar.


mbl.is Úraræningi til landsins í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeir sem líta á Lilju sem einhverja stjórnmála hetju

Spyrjið hana afhverju í ósköpunum hún gekk útaf Alþingisfundi og sat þar af leiðandi hjá í atkvæðagreiðslu um frumvarpið hans Árna Páls um gengislánin og dóminn sem átti yfir alla að ganga.

Spyrjið hana ennfremur að því hvernig henni dettur í hug að hampa sjálfri sér eftir að (ó)lögin eru dæmd ómerk fyrir Hæstarétti og státa sér af því að hafa gengið útaf þingfundi afþví henni hafi fundist þetta svo mikið bull

Ef það væri eitthvað væri í þessa kjérlingu spunnið þá hefði hún greitt atkvæði á móti frumvarpinu en hún eins og flestir aðrir setja flokkshagsmuni og stjórnarstöðugleika ofar en hennar eigin "sannfæringu".

Sannfæringinn ristir nú ekki dýpra en svo að núna á að nota það sem publicity stönt til að fiska atkvæði fyrir nýtt framboð sitt... sem byrjar svona frábærlega vel hjá henni greyinu.


mbl.is Hún á að pakka saman og hætta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað með tjáningarfrelsið ?

Þessi bloggfærsla var að því er ég best veit skrifuð á hans eigin frítíma og undir hans eigin nafni en ekki undir formerkjum skólans eða hans sem kennara við skólan.  Svo lengi sem hann flytji skólabörnunum ekki þennan boðskap sinn þá hefur hann fullan rétt á því að hafa og viðra þær skoðanir sem honum sýnist.

Bæjar- og skólayfirvöld á Akureyri gætu hugsanlega verið búin að brjóta illa gegn flóninu honum Snorra enda hefur hann sitt skoðana, trú og tjáningarfrelsi eins og allir aðrir.

Ef hann á ekki að mega vera kennari í skólanum einfaldlega vegna þess að hann hefur skoðanir þá heimta ég það að Ólinu Þorvarðardóttur og fleiri þingmönnum verði einnig neitað að starfa í skólakerfinu þar sem þau geta eflaust mögulega einnig haft hugsanlega slæm áhrif á skoðanir skólabarna!!!

 


mbl.is Ef ég lendi í helvíti rotna ég þar glaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað með Intrum umslög?

Nú senda Intrum, Momentum og öll önnur innheimtufyrirtæki merkt umslög og ekki senda þeir fólki afsláttarmiða.

Er persónuvernd þá hér með ekki búin að úrskurða að þeim sé bannað að senda í merktum umslögum líka ?


mbl.is Mega ekki „bara minna þig á“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er það bara ég...

...eða er þetta ósmekklegasta og ófyndnasta falda myndavél sem ég hef nokkurn tímann séð ?
mbl.is Falin myndavél: Gaddafi til Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

dómsmáli sólheima áfrýjað en hælisleitendur fá peninga!

Ég á ekki til orð... ríkisstjórnin hugsar betur um útlendinga en íslendinga sem er þeirra hlutverk.

Á meðan dómsmáli sólheima er áfrýjað og íslendingar í fjárþörf eru látnir bíða á hakanum þá fá hælisleitendur sem kosta samfélagið um tvöfalt það sem hver maður á atvinnuleysisskrá kostar meiri peninga.

Það þarf að setja skýra stefnu um að þeir sem framvísa fölsuðum vegabréfum eða verða uppvísir við tilraun til að komast ólöglega inn í landið sé vísað jafnskjótt úr landi.

Mál þeirra sem koma inn í landið þarf svo að afgreiða miklu hraðar en útlendingastofnun gerir nú.

En nei ríkisstjórnin vill ekki ráðast að rótum vandans og setja tappa í gatið áður en hún heldur áfram að dæla úr bátnum... hún hamast með teskeiðar við að skólfa vatninu útbyrðis.


mbl.is Útlendingastofnun fær aukið fé
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alltof kostnaðarsöm stefna

Í fréttum fyrir rúmum 2 árum var mikið fjallað um þetta og sagt frá því að hver hælisleitandi fengi frítt húsnæði og uppihald...heilbrigðisþjónustu...sund og almenningssamgöngur auk dagpeninga.  Kom þar fram að heildarkostnaður við hvern einstakling væri 260 þúsund krónur á mánuði sem er talsvert meira en maður á atvinnuleysisbótum. Íslenskar fjölskyldur lifa sumar á minni peningum en þetta og það er til háborinnar skammar að á meðan Íslendingar lifa við skort skuli svo miklum peningum vera ausið í "hælisleitendur".

Margir vistmenn þarna höfðu þá dvalið þar mánuðum samanog jafnvel ekki til neinir pappírar um fólkið.  Margir hverjir hafa verið uppvísir af því að framvísa fölsuðum vegabréfum og jafnvel vera eftirlýstir fyrir glæpi í heimalandi sínu.

Réttast væri að Ísland markaði skýra stefnu í málefnum hælisleitenda og þeir sem væru uppvísir af því að falsa vegabréf eða notast við stolin væru send rakleiðis til baka.  Það er lágmarkskrafa að hælisleitendur komi þá hreint fram og segist vera hælisleitendur frekar en að koma sér ólöglega inn í landið og stunda svo svarta atvinnu.

Einnig er nauðsynlegt að flýta meðferð hælisleitenda... taka þarf ákvörðun eins fljótt og auðið er hvort hælisleitendum verði gefinn kostur á að dvelja í landinu eða hvort þeim eigi að vísa annað.  Eðlilegt væri svo að veita þeim félagslega aðstoð í 3-6 mánuði og ef þeir ekki geta fundið sér atvinnu og staðið á eigin fótum í samfélaginu ætti að endurskoða landvistarleyfi og hvort við eigum lengur að borga undir þá.


mbl.is Útlendingastofnun að sligast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kreppan bara á Íslandi ?

Fréttir af methagnaði afþreyingar og tæknifyrirtækja sem selja "óþarfa" á uppsprengdu verði hlítur að gefa vísbendingar til þess að almennt komi kreppann ekki illa við almennan neytanda í hinni stóru Ameríku og á flestum stöðum í Evrópu.

Slíkar vísbendingar vekja upp spurningar á borð við hversvegna íslensk fyrirtæki eiga ekki jafn auðvelt uppdráttar og í hverju munurinn liggi.

Hjarta atvinnulífsins er neytandinn sem kaupir vöru og þjónustu...á meðan neysla heldur áfram lifa fyrirtæki góðu lífi og veita almenningi atvinnu.  Í ameríku þá standa margir í þeirri stöðu að húsnæði þeirra er skuldsett langt upp fyrir rjáfur og bregðu fólk á það ráð að skila lyklunum til bankans, fer á leigumarkaðinn og/eða jafnvel kaupa annað sambærilegt húsnæði á nýjum lánum frá öðrum banka.

Almenningur ber ekki skuldavanda sem skapaðist vegna óábyrgra lánveitinga og fjárfestinga heldur bankarnir sem stóðu fyrir slíku og hjólin halda áfram að snúast.

Hér heima er skuldsetning og greiðslubyrgði almennings langt yfir þolmörkum og neysla stöðvast.  Þegar neysla stöðvast hægir á atvinnulífinu og atvinnuleysið tekur sinn toll.  Gjaldþrota fjármálafyrirtæki og bönkar sem sköpuðu þetta umhverfi með óábyrgum lánveitingum og fjárfestingu fá svo heimildir og stuðning frá Samfylkingunni til þess að ganga á eftir skuldurum fram yfir gröf og dauða.

Og hvað gerir svo almúginn ?  Ekki neitt...hann hangir heima hjá sér og vælir yfir því að allt sé þetta nú Davíð Oddsyni að kenna og prísa sig svo til sæla yfir því að hafa handrukkara bankana ( Samfylkingunna ) fremur en sjálfstæðismenn í ríkisstjórn...

 


mbl.is Methagnaður hjá Apple
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vandanum velt á almenna borgara.

Það liggur í augum uppi að vandamál OR er fjárhagslegt en það er vítavert gáleysi af borgarstjórnum og stjórnarmönnum OR að svo er fyrir komið.  REI og GGE sem fór af stað þegar Ingibjörg var í borgarstjórastólnum átti að tryggja útrásarvíkingum eign á orkuveitunni og á sama tíma var fjárfest óvarlega fyrir stóriðju.

Allar virkjanir sem skaffa borgarbúum rafmagn eru gamlar og þegar uppgreiddar og af þeim hefur orkuveitan töluverðan hagnað...með broti á samkeppnislögum er gjaldskrá til almennra borgara svo hækkuð til að greiða skuldir stóriðjuhlutans en slíkt skerðir auðvitað samkeppnisstöðu annara orkuveitna og er kolólöglegt...

Á sama tíma og svarið er augljóst þá tekur Jón Gnarr sem ber ábyrgð á ólögmætum gjaldskrárhækkunum sér ríkisstjórnina til fyrirmyndar og stofnar nefnd með tilheyrandi kostnaði...


mbl.is Fækkun starfa og eignasala
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Barátta Jóns að engu höfð

Þar sem Jón Sigurðsson er mikið hafður til umræðu enda ekki nema von þar sem 17. júni er á næsta leiti þá þykir mér rétt að vekja athygli á því að þjóðhátíðardagur Íslendinga var settur á afmælisdegi Jóns til heiðurs hans miklu sjálfstæðisbaráttu.

Nú þegar baráttu í hans anda er þörf meira en nokkurn tíman áður stendur til að blása til hátíðarhalda með tilheyrandi húllumhæ enda 200 ára afmæli hans væri hann enn á lífi.

Mér þykir það skömm og svívirða við minningu þessarar þjóðhetju að fagna við þetta tilefni enda stefnir okkar núverandi ríkisstjórn hraðbyr undir alþjóðavald með kúgunum og hræðsluáróðri.  Sem er þvert á hans baráttu.  Væri Jón á lífi myndi hann ekki vilja hátíðarhöld enda er ekki tilefni til réttara væri að þjóðin myndi sameinast um að heiðra minningu þessa manns og boða til duglegra mótmæla!


mbl.is Ræður Jóns Sigurðssonar á netið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband