Hvert er þá hlutverk RÚV
6.6.2011 | 12:43
Hlutverk RÚV er lögum samkvæmt m.a. að vera almannavarnartæki notað til þess að láta almenning vita af náttúruhamförum og öðrum aðgerðum almannavarna ( kaldhæðni hinsvegar að bylgjan hefur verið á undan að flytja fréttir af síðustu eldgosum og aðgerðum almannavarna! ). Ef útsending verður síðan háð myndlykli þá verður þetta hlutverk slegið útaf borðinu.
Einnig þá er hlutverk RÚV að stuðla að íslenskri dagskrárgerðsem það varla sinnir allavega ekki í Sjónvarpi...
Í öðru lagi þá á RÚV að sýna hlutlausa stjórnmálaumræðu en eini stjórnmálaþáttur þeirra er Silfur Egils sem er stjórnað af manni sem þiggur 300 þús á mánuði í laun frá Baugi fyrir að skrifa á Eyjuna.is og er marg rómaður fyrir að vera einn hlutdrægasti fjölmiðla maður landsins.
Ofaná þetta þá eru glæsibifreiðar og ofurlaun í boði fyrir útvarpsstjóra allt í boði nefskatts sem ekki er nýttur eins og lög segja til um...
Á það svo að heita löglegt að senda okkur nefskatt óháð því hvort ég horfi eða hafi áhuga á því að horfa á leiðarljós eða álíka miður skemmtilega sjónvarpsdagskrá...nefskatt sem hækkar neysluvísitölu, verðbólgu og flestar aðrar afborganir landsmanna ???
Steingrímur troddu þessum nefskatti og myndlyklum þangað sem sólin skín ekki!
|
Myndlykill ekki inni í nefskatti |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook

Athugasemdir
Það er ekkert vit í því að vera með ríkissjónvarp sem þarf að reiða sig á útsendingarkerfi Vodafone og Símans en sendir ekki út sjálft.
Ef öryggisþátturinn skiptir ekki máli lengur, þá er eðlilegt að næsta skref verði líka stigið og Ofanleiti lagt niður.
Kári Harðarson, 6.6.2011 kl. 14:30
Ég veit nú ekki hvort það eigi að leggja ríkisútvarpið alfarið niður þó ég myndi nú eflaust glotta út í annað vikið fyrirlitningarinnar einnar vegna.
En Alþingi gæti t.d. verið sent út frá RÚV en ekki á Alþingisrásinni inni á myndlyklum VF og Símans.
Svo er einnig mikilvægt að íslenskar kvikmyndir og dagskrárgerð fái einhverstaðar sýningartíma sem og Landsleikir og aðrir íþrótta- og stórviðburðir í Íslensku samfélagi.
Eitt er allavega víst að skera mætti mikið niður í rekstri RÚV og þetta þarf ekki að kosta hvert einasta mannsbarn 18 þús krónur á ári.
Arnar Geir Kárason, 6.6.2011 kl. 20:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.